Viðskipti innlent

Árni ráðinn forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans

Árni Maríasson hefur verið ráðinn forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans. Hann tekur við starfinu af Helga Þór Arasyni sem nýlega var ráðinn framkvæmdastjóri Landsbréfa, dótturfélags bankans.

Árni starfaði áður sem forstöðumaður gjaldeyris- og afleiðumiðlunar í Búnaðarbankanum frá árinu 1998 til 2004 og forstöðumaður á Fyrirtækjasviði Landsbanka Íslands frá 2004 til 2009. Síðustu ár hefur hann verið forstöðumaður Lánasviðs MP Banka.  

Árni er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og Masterspróf í stjórnmálahagfræði og alþjóðasamskiptum frá University of Kent í Englandi. Hann hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×