365 tekur yfir Konunglega kvikmyndafélagið 19. maí 2014 13:12 365 miðlar og hluthafar Konunglega kvikmyndafélagsins hafa komist að samkomulagi. Vísir/Stefán
365 miðlar og hluthafar Konunglega kvikmyndafélagsins hafa komist að samkomulagi um að 365 miðlar taki yfir alla hluti í Konunglega kvikmyndafélaginu. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu. Þann 30. apríl síðastliðinn tilkynnti Konunglega kvikmyndafélagið að félagið leitaði aukins hlutafjár til að styrkja rekstur félagsins, samhliða því sem öllum starfsmönnum þess var sagt upp störfum. Kostnaður við uppsetningu reyndist meiri en áætlaður var og ekki var vilji hluthafa til að skuldsetja áframhaldandi rekstur. Í kjölfar viðræðna aðila um hlutafjáraukningu varð niðurstaðan sú að 365 miðlar tæki yfir alla hluti í félaginu. Í tilkynningunni segir að nýir eigendur hafi hug á því að efla enn frekar starfsemi miðilsins. Aftur á móti hafi verið ákveðið að gefa Miklagarði sumarfrí frá og með 1. júní næstkomandi og munu nýir eigendur endurhugsa grundvöll þeirrar stöðvar.„Við erum ánægðir með þessa niðurstöðu,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, stofnandi Konunglega kvikmyndafélagsins, í tilkynningunni. „Vonir standa til þess að flest það öfluga starfsfólk sem hefur unnið að þessu verkefni bjóðist áframhaldandi starf við fjölmiðla, og skiptir það höfuðmáli. Það verður gaman að fylgjast með framhaldinu.“ Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir sömuleiðis í tilkynningunni telja að stofnun stöðvanna tveggja hafi að mörgu leyti verið áhugaverð tilraun. „Það er hins vegar ljóst að þessi rekstur hefur ekki fjárhagslegan grundvöll við núverandi efnahagsaðstæður,“ segir Ari. „Áhugi okkar á þessu félagi byggir á því að við getum nýtt okkur tæknibúnað sem komið hefur verið upp og samþætt hluta af starfseminni við það sem við erum að gera.“
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Sjá meira