Viðskipti innlent

Express ferðir gjaldþrota

Bjarki Ármannsson skrifar
Fyrrum ferðaskrifstofa Iceland Express hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Fyrrum ferðaskrifstofa Iceland Express hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Vísir/Pjetur
Express Ferðir, dótturfyrirtæki Iceland Express, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið var ferðaskrifstofa flugfélagsins og var rekið síðasta ár af Pálma Haraldssyni eftir að WOW air tók yfir flugrekstur Iceland Express haustið 2012.

Það var mbl.is sem greindi fyrst frá þessu. Félagið var tekið til skipta þann fjórtánda maí síðastliðinn og var Ástráður Haraldsson skipaður skiptastjóri í búinu, en hann er jafnframt skiptastjóri þrotabús Iceland Express.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×