Á að efla eftirlit með kerfislegri áhættu 3. maí 2014 14:13
Frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um stofnun fjármálastöðugleikaráðs, sem fengi ríkar valdheimildir til að afla upplýsinga úr bankakerfinu og framkvæma áhættumat fyrir bankakerfið, nýtur stuðnings allra sem hafa skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall viðskiptabankanna sem kom út 12. apríl 2010 er rakið að samstarf Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans hefði þurft að vera mun nánara í aðdraganda fjármálakreppunnar haustið 2008. Þetta samstarf var ófullnægjandi jafnvel þótt mælt væri fyrir um samstarf þessara stofnana og upplýsingaskipti bæði í lögum um Seðlabanka Íslands og í lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Frumvarp fjármálaráðherra um fjármálastöðugleikaráð er ætlað að bæta úr þessu, en lögð voru drög að frumvarpinu á síðasta kjörtímabili. Hlutverk ráðsins er að vera formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika - og samhæfa stefnumótun og viðbúnað opinberra aðila við fjármálakreppu. Samkvæmt frumvarpinu mun ráðið skipa fjármálaráðherra, verður jafnframt formaður ráðsins, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Undir ráðinu mun síðan starfa sérstök kerfisáhættunefnd. Í kerfisáhættunefndinni verða seðlabankastjóri og forstjóri FME auk framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, aðstoðarforstjóra FME og þá verður í þessari nefnd einn sérfræðingur í málefnum fjármálamarkaða, skipaður af ráðherra. Vakin er athygli á því í Morgunblaðinu að allar umsagnir sem borist hafa um frumvarpið eru jákvæðar. „Með þessu frumvarpi er brugðist við þessari meginveilu sem kom í ljós í kjölfar fjármálakreppunnar. Það var skortur á tengslum þessara stofnana sem stunda heildareftirlit sem Seðlabankinn og eindareftirlitið hjá Fjármálaeftirlitinu og það virtist vera sem enginn einn hafi haft þessa heildaryfirsýn. En nú verður þetta fjármálastöðugleikaráð sem mun hittast reglulega og menn munu þá hafa samráð og samvinnu um þetta eftirlit, “ segir Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Ljóst er að frumvarpið þýðir að ekki verður stefnt að sameiningu FME og Seðlabankans á næstunni því gert er ráð fyrir því að stofnanirnar verði áfram aðskildar. „Þetta er mjög einfalt og fljótlegt að gera, á meðan það að sameina Seðlabanka og Fjármálaeftirlitið þyrfti mjög vandaðan undirbúning og ítarlegan. En með þessu er hægt að bregðast strax við og þá er alveg sjálfsagt að gera það hvað sem síðar verður. “
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira