Viðskipti innlent

Skipar nefnd um heildarendurskoðun laga um Seðlabanka Íslands

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/stefán
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað nefnd sérfræðinga um heildarendurskoðun laga um Seðlabanka Íslands.

Þetta kemur fram í frétt á vef Fjármála-og efnahagsráðuneytinu.

Nefndin skal skila fjármála- og efnahagsráðherra frumvarpi til nýrra laga um Seðlabanka Íslands eigi síðar en 31. desember 2014.

Kjósi nefndin svo, getur hún gert tillögu til ráðherra um breytingar á einstaka ákvæðum áður en heildarendurskoðun er lokið.

Í nefndinni sitja Ólöf Nordal, lögfræðingur, sem er formaður hennar, dr. Friðrik Már Baldursson, hagfræðingur og Þráinn Eggertsson, hagfræðingur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×