NBC tapar á enska boltanum Finnur Thorlacius skrifar 9. maí 2014 14:50 Áhorf hefur þrefaldast á enska boltann í Bandaríkjunum.
NBC keypti sýningaréttinn á enska boltanum til þriggja fyrir tímabilið í fyrra. Sala á auglýsingum kringum sýningar á leikjum enska boltans hefur ekki enn náð að skila NBC hagnaði, en talsmenn stöðvarinnar segja að því ætli þeir að breyta og mikið hafi lærst af fyrsta tímabilinu. Meðaláhorf á hvern sýndan leik var 440.000 manns og hefur áhuginn aukist mjög mikið á síðustu árum. NBC hefur náð að þrefalda áhorfendafjöldann og alls hafa 30,5 milljón manns eitthvað horft á enska boltann á þessu tímabili sem nú er að klárast. Á suma leiki hefur áhorf verið meira en nemur 1 milljón manns, en það er lítið í samanburði við áhorf á NFL leiki í ameríska fótboltanum, en þar er meðaltalið 17 milljón manns. Það að áhorfið er að aukast svona hratt á enska boltann gefur aukin tækifæri fyrir NBC og aldrei að vita nema að þessi þriggja ára sýningarréttur muni á endanum skila hagnaði til stöðvarinnar. Víst er að árið í ár hefði farið betur ef Manchester United hefði gengið betur en fjölmargir áhangendur þess félags er í Bandaríkjunum, ekki síst í Detroit og Dallas. Hætt er við því að áhugi þeirra hafi minnkað er síga fór á ógæfuhliðna hjá Manchester United á tímabilinu.
Mest lesið Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Viðskipti innlent Tekjur jukust um helming milli ára Viðskipti innlent Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Viðskipti erlent Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Viðskipti innlent Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Viðskipti innlent Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Viðskipti innlent „Þær eru bara of dýrar“ Neytendur Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play Viðskipti innlent Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira