Viðskipti innlent

Flybe hefur flug til Íslands

Finnur Thorlacius skrifar
Flybe flugvél á flugi.
Flybe flugvél á flugi. Flybe
Með skömmum fyrirvara hafa forsvarsmenn Flybe ákveðið að hefja flug til Íslands frá Birmingham í sumar. Iceland Express bauð á sínum tíma upp á flug til þessarar næst næstfjölmennstu borgar Bretlands.

Íslandsflug Flybe hefst í lok júní og lýkur í byrjun september og farnar verða þrjár ferðir í viku. Flogið verður frá Keflavík rétt fyrir miðnætti og lent í Birmingham um klukkan fjögur að nóttu.

Samkvæmt athugun Túrista er lægsta fargjald Flybe 51,8 evrur sem jafngildir um átta þúsund krónum. Ódýrasta farið báðar leiðir er á tæpar nítján þúsund krónur og við það bætist töskugjald upp á fjögur þúsund krónur.

Með tilkomu Flybe verður Easy Jet ekki lengur eina breska flugfélagið sem býður upp á áætlunarflug hingað. Mikil aukning hefur orðið á undanförnum misserum á flugi til London og hefur það tvöfaldast á síðust tveimur árum. Er nú flogið þangað um 40 sinnum í viku.

Við það bætist svo flug til Bristol, Edinborgar, Glasgow og Manchester og nú bætist Birmingham við sem áfangastaður.  Í heildina verður því flogið um átta sinnum á dag til Bretlands í sumar frá Keflavík.

Ferðamannastraumurinn hingað frá Bretlandi hefur aukist mjög hratt síðustu ár og í fyrra heimsóttu 137 þúsund Breta landið og nam viðbótin 45 prósentum frá árinu á undan samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Bandaríkjamenn eru næst fjölmennastir hér á landi og í fyrra komu um 120 þúsund ferðamenn þaðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×