Viðskipti innlent

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja lætur af störfum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Gunnar K. Gunnarsson
Gunnar K. Gunnarsson
Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja hefur látið af störfum.

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, og Gunnar hafa gert með sér samkomulag um starfslok Gunnars.

Nýr forstjóri verður settur yfir stofnunina tímabundið þar til fyrirhugaðar sameiningar heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmi Suðurlands koma til framkvæmda.

Samkvæmt samkomulaginu verður Gunnar settum forstjóra til aðstoðar til að byrja með.



.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×