„Þetta hefur áhrif á fleiri en umbjóðanda minn“ Samúel Karl Ólason skrifar 15. apríl 2014 16:41 Einar Hugi Bjarnason, lögmaður. Vísir/Rósa
Hafi breytingar verið gerðar á skilmálum gengistryggðra lána á milli lántakenda og lánveitenda geta lántakendur, að öðrum skilyrðum uppfylltum, átt rétt á samningsvöxtum á því tímabili sem breytingin var í gildi. Ekki seðlabankavöxtum. Héraðdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í máli Steingríms Aðalsteinssonar gegn Landsbankanum. Kjarni deilunnar var hvaða áhrif það hefði á uppgjör gengislána að skilmálabreytingar voru gerðar á samningstímanum. „Bankinn hélt því fram að á meðan slíkar skilmálabreytingar væru í gildi, ætti að reikna seðlabankavexti. Því var umbjóðandi minn ósammála og vísaði til þess að þarna væri samningur á milli bankans og lántakans sem ætti ekki að hafa áhrif á rétt hans til samningsvaxta enda hefði hann fullnaðarkvittanir undir höndum,“ segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður einstaklingsins. Einstaklingurinnvann málið að fullu og átti því rétt á samningsvöxtum á því tímabili sem þessar skilmálabreytingar voru í gildi. „Þetta getur skipt máli fyrir fleiri en minn umbjóðanda því þegar krónan fór að veikjast og gengislánin stökkbreyttust var algengara en ekki að lántakar færu og ræddu við lánveitendur. Margir reyndu á þessum tíma að semja um einhverskonar breytingar eða frestun á upphaflegum greiðsluskilmálum með það að markmiði að halda lánum í skilum,“ segir Einar. „Þetta er mjög mikilvægur dómur. Að fá úr þessu skorið að þó að skilmálabreytingar hafi verið gerðar að þá kemur það ekki í veg fyrir að menn geti átt rétt á samningsvöxtum á því tímabili.“ „Afborganir hækkuðu og margir hverjir réðu ekki við þær og fóru og sömdu við bankann um frystingar eða einhvers konar breytingar. Þannig að þetta hefur áhrif á fleiri en minn umbjóðanda.“ „Þarna þurfti þessi einstaklingur að fara í dómsmál við stærsta fjármálafyrirtæki á Íslandi til að fá þennan rétt sinn viðurkenndan,“ segir Einar.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Sjá meira