Skuldir Kópavogsbæjar hafa lækka um 2 milljarða Stefán Árni Pálsson skrifar 16. apríl 2014 16:57 Vísir/Stefán
Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar var 1.192 milljónir á árinu 2013 en áætlun gerði ráð fyrir 108 milljónum en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ. Útkoman er þannig tíu sinnum betri en áætlun gerði ráð fyrir, munurinn eru alls 1.084 milljónir króna. Skýringin liggur fyrst og fremst í hagnaði vegna úthlutunar lóða sem nemur um 660 milljónum króna. Þá var gengishagnaður upp á rúmar 300 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar sem lagður var fram i bæjarráði Kópavogs í morgun. Ársreikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs 22. apríl. Tekjur voru 21.818 milljónir króna á árinu en bein rekstrargjöld 16.898 milljón króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir var 4.920 milljónir króna. Veltufé frá rekstri nam rúmum 2,8 milljörðum króna sem er í takt við áætlanir bæjarins. Skuldir Kópavogsbæjar lækkuðu um rúma 2 milljarða króna á árinu þrátt fyrir hækkun lífeyrisskuldbindinga og hækkun vegna gjaldfærslu verðbóta á verðtryggðum lánum. Rekstur málaflokka gekk vel og var nálægt áætlun. Laun og launatengd gjöld samstæðu eru 1 prósent yfir áætlun en á móti kemur að skatttekjur voru 2,3% yfir áætlun og íbúum Kópavogs fjölgaði um 2% á árinu. „Niðurgreiðsla skulda Kópavogsbæjar um tvo milljarða eru góðar fréttir fyrir Kópavogsbúa og mikill rekstrarafgangur sömuleiðis. Það er styrkur okkar að rekstraráætlanir málaflokka skuli standast en hjá Kópavogsbæ starfar hæft fólk sem hefur lagst á eitt við að láta þær standast. Þá má þess geta að uppgreiðslu erlendra lána er nánast lokið þannig að áhættuþáttur þeim tengdur er úr sögunni,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. Skuldahlutfall samstæðu Kópavogsbæjar var um síðustu áramót er 185% að teknu tilliti til langtíma lífeyrisskuldbindinga en var um 242% þegar hæst var árið 2010. Hraðar gengur að greiða niður skuldir bæjarins en gert var ráð fyrir í aðlögunaráætlun sem samþykkt var í ársbyrjun 2013. Allt stefnir nú í að skuldahlutfallið verði komið undir lögbundið 150% hámark árið 2017 en aðlögunartími að því hlutfalli er til 2023. Íbúar í Kópavogi voru 32.303 þann 1. desember 2013 og fjölgaði þeim um 627 frá fyrra ári þegar þeir voru 31.676.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira