Steig fyrstu skrefin í Kringlunni Haraldur Guðmundsson skrifar 19. apríl 2014 09:00 Garðar lærði heimspeki og er með MBA-gráðu frá Manchester í Englandi. Vísir/GVA „
Þessi vetur er búinn að vera mjög fjörugur enda miklar breytingar á fyrirtækinu, bæði með fjárfestingum í SMI-eignunum og Landfestum,“ segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags. Hann og aðrir starfsmenn Eikar hafa á undanförnum vikum og mánuðum unnið að breytingum á þeim fasteignum sem félagið keypti af SMI ehf. og tók við í febrúar. Einnig er unnið að skráningu félagsins á markað. „Ef við byrjum fyrir norðan þá voru fjórtán laus verslunarrými á Glerártorgi og nú, tveimur mánuðum síðar, eru einungis fimm rými laus á sama tíma og við eigum í viðræðum við tvo aðila og fjórir eru á biðlista. Síðan erum við búin að loka samningum í Turninum í Kópavogi og erum að opna verslunarmiðstöð í Hafnarfirði þar sem ÁTVR var að opna nýja verslun,“ segir Garðar. Hann er stúdent frá Verslunarskóla Íslands og lauk BA-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands. Þaðan lá leiðin til Manchester þar sem hann lauk MBA-gráðu við Salford-háskóla árið 1997. „Eftir nám byrjaði ég sem verðbréfamiðlari en það átti engan veginn við mig. Árið 1998 byrjaði ég síðan í fasteignageiranum þegar ég vann með Ragnari Atla Guðmundssyni að stækkun Kringlunnar. Þar steig ég mín fyrstu skref í geiranum.“ Garðar vann á þeim tíma hjá Eignarhaldsfélagi Kringlunnar hf. sem síðar var sameinað Þyrpingu hf. undir nafni þess félags.Hann sagði skilið við félagið árið 2002 þegar það varð að Stoðum og síðar Landic Property. „Þá var ég fenginn til að stofna Eikina sem var þá í eigu Lýsingar. Ég er því búinn að vera hér frá þeim tíma þegar ég sat einn við skrifborð á gangi Lýsingar við hliðina á mötuneyti félagsins, og nú er Eik á barmi skráningar.“ Garðar er í sambúð með Auði Finnbogadóttur, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga. Hann á þrjú börn á aldrinum sjö til sautján ára. „Við ætlum að bregða okkur út til Danmerkur um páskana og heimsækja Lególand í tvo daga.En þegar ég er ekki í vinnunni eða með fjölskyldunni þá reyni ég að dröslast á fjöll í göngur og í golf á sumrin.“Ásdís Halla BragadóttirÁsdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður Evu consortium ehf. „Þegar Garðar er ekki að hlúa að fasteignum í vinnunni þá er hann heima hjá sér að passa upp á garðinn, húsið og fjölskylduna og allt það. Svo er hann alveg rosalega skemmtilegur og vandaður náungi sem býr til heimsins bestu kokteila. Og það er sko ekkert smáræði þegar hann býður heim og upp á kokteila. Það er ekkert venjulegur mojito þar á borðum, heldur chili-mojito eða eitthvað álíka framandi. Hann er mikill kokkur og gestgjafi og er svolítið í tilraunastarfsemi í eldhúsinu eins og í kokteilgerðinni. Mér finnst hún Auður vinkona mín óþægilega vel gift. Það er lottó að finna karl eins og Garðar.”Ólafur Helgi ÓlafssonÓlafur Helgi Ólafsson, hjá Marcus ráðgjöf ehf. Ég kynntist Garðari þegar hann varð starfsmaður Lýsingar hf. árið 2002 og vann að stofnun Eikarinnar, dótturfélags Lýsingar, og á hann reyndar allan heiðurinn af nafninu. Garðar var lítillátur en einbeittur og ákveðinn. Það kom strax í ljós að hann var með yfirgripsmikla fjármálaþekkingu, var skarpgreindur og með skipulagshæfileika, en það sem meira var hann gekk í öll verk, meðal annars forritun, og taldi ekkert eftir sér. Garðar hefur verið farsæll í starfi og byggt upp traust fyrirtæki sem nýtur virðingar. Á síðastliðnum árum hefur hann stýrt Eikinni farsællega í gegnum ólgusjó tíðra eigendaskipta. Er ekki að efa að heimspekinámið hafi gert hann víðsýnni og oft nýst honum vel í snúnum aðstæðum.”
Mest lesið Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Sjá meira