Viðskipti innlent

Sárafáir fóru á Grásleppu

Mynd/Ormur Arnarsson
Sárafáir grásleppubátar eru byrjaðir veiðar, eftir því sem fréttastofan kemst næst, þótt vertíðin hefði mátt hefjast út af  Norðausturlandi fyrir tíu dögum.

Aðal ástæða fyrir litlum áhuga sjómanna á þessum veiðum er að grásleppuhrogn hröpuðu um 40 prósent í verði á heimsmarkaði í fyrra, að minnstakosti þúsund tunnur eru enn óseldar og kaupendur bjóða nú mun lægra verð fyrir óskorna grásleppu en í fyrra.

Þá hafa náttúruverndarsamatök þrýst á verslanakeðjur í Svíþjóð og þýskalandi að hætta sölu á grásleppuhrognum, þar sem grásleppan kunni að vera í útrýmingarhættu og loks er mikið til af óseldum grásleppuhrognum í Grænlandi eftir að veiðarnar þar fóru úr böndunum í fyrra og mikið meira var veitt en áætlað var. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×