Höftin eru að ganga frá íslensku efnahagslífi Jakob Bjarnar skrifar 3. apríl 2014 13:33 Þorsteinn Víglundsson segir að ekki sé lengur hægt að búa við gjaldeyrishöft, sem áttu að vera til tveggja ára en hafa nú fylgt okkur í rúm fimm ár.
Stóru íslensku iðnfyrirtækin Össur, Marel og CCP eru á barmi þess að flytja höfuðstöðvar sínar frá Íslandi.Þetta er fullyrt í vefmiðlinum Kjarnanum. Þar segir að mikil barátta hafi átt sér stað bak við tjöldin undanfarin misseri í viðskiptalífinu sem og stjórnmálunum. Átökin eru vegna þeirrar stöðu sem fjármagnshöftin, þrotabú föllnu bankanna og ákvörðun stjórnvalda um að draga formlega til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu hefur haft í för með sér. Þorsteinn Víglundsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og honum kemur þetta hreint ekki á óvart. „Þetta er náttúrlega mjög alvarleg staða í þessu máli. Kemur hins vegar ekkert á óvart í ljósi þess að talsmenn þessara fyrirtækja hafa varað mjög lengi við afdrifaríkum hafta á rekstur fyrirtækja þeirra. Það er auðvitað alveg ljóst að hvað þetta varðar höfum við verið á skilorði og til lengri tíma litið er algjörlega óásættanlegt rekstrarumhverfi fyrir alþjóðleg fyrirtæki hafandi gjaldeyrishöft hér á landi. Það snýr ekkert bara að stórum og sterkum iðnfyrirtækjum eins og Marel og Össuri heldur ekki síður ungum sprotafyrirtækjum sem okkur hefur þótt neyðst fullsnemma til að taka upp starfsemi og flutt hana út fyrir landsteina til að geta vaxið og dafnað.“ Þorsteinn heldur að stjórnvöld hljóti að gera sér grein fyrir alvarleika málsins. Og vonast til að þau nái árangri í afnámi hafta á þessu ári. „Við eigum engan annan valkost í stöðunni. Þetta ástand hefur varað alltof lengi. Gjaldeyrishöftin áttu að vera til tveggja ára en þau hafa nú fylgt okkur nú í fimm ár. Og við þetta verður ekki unað mikið lengur.“ Þorsteinn segir enga leið að meta hvaða afleiðingar það hefði fyrir íslensk efnahagslíf ef áðurnefnd fyrirtæki tæku sig upp, þær yrðu alvarlegar.
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent