Viðskipti innlent

Gistinóttum í febrúar fjölgaði um 13% milli ára

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/arnþór
Gistinætur á hótelum í febrúar voru 160.400, en það er 13% aukning miðað við febrúar 2013 en þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.

Gistinætur erlendra gesta voru 84% af heildarfjölda gistinátta en þeim fjölgaði um 25% frá sama tíma í fyrra.

Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 1%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×