„You Ain't Seen Nothing Yet“ Jón Júlíus Karlsson skrifar 5. apríl 2014 19:32
Skattalækkanir ríkisstjórnarinnar eru rétt að byrja. Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á flokkráðsfundi flokksins í morgun. Hann þakkar einnig krónunni fyrir að atvinnuleysi sé minna á Íslandi en í öllum 28 ríkjum Evrópusambandins. Bjarni kom víða við í ræðu sinni í Laugardalshöll í morgun. Hann minntist sérstaklega á þann árangur sem ríkisstjórnin hefði náð við að lækka skatta. Ríkisstjórnin væri búin að minnka skattbyrði einstaklinga og fyrirtækja um 25 milljarða á síðasta ári. „Vinstri flokkarnir virðast líta svo á að óskattlagður eyrir sé tapað fé. Við erum reyndar rétt að byrja. Skattar munu lækka frekar. Eins og maðurinn sagði: 'You Ain't Seen Nothing Yet',“ sagði Bjarni í Laugardalshöll í morgun. Einföldun á skattkerfinu sé næst á dagskrá og hefja þurfi endurskoðun á tollum hér á landi. Ofurtollar eigi að víkja. Bjarni sagði einnig að nýr kjarasamningur við framhaldsskólakennara markaði tímamót í skólamálum og fagnaði því að samningar hefðu tekist. Þegar talið barst að evrópumálum sagði Bjarni: „Atvinnuleysi jókst í fyrra í ellefu Evrópusambandslöndum og var að meðaltali 10,6%. Ef einungis er litið til evruríkjanna þá var það enn meira. Ég leyfi mér að vekja athygli á því í samhengi við umræðuna um efnahagsmál að atvinnuleysi á Íslandi er lægra en í hverju einasta af 28 ríkjum Evrópusambandsins. Við skulum halda því til haga að þessi veruleiki er í beinu tengslum við þá ákvörðun að hafa okkar eigin gjaldmiðil.“ Nánar í myndbandinu hér að ofan.
Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira