Skrifuðu rafrænt undir ársreikning frá sjö mismunandi stöðum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 9. apríl 2014 10:45 Stjórnarmenn Auðkennis voru staddir á sjö mismunandi stöðum í heiminum þegar þeir skrifuðu rafrænt undir ársreikning félagsins. Vísir/Auðkenni
Stjórnarmenn í Auðkenni skrifuðu í síðustu viku rafrænt undir ársreikning félagsins með farsímum frá sjö stöðum í heiminum. Undirritanirnar fóru fram í þremur löndum; Þýskalandi, Bandaríkjunum og fjórum sveitarfélögum á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem skrifað er undir ársreikning með þessum hætti hér á landi og sennilega í öllum heiminum. Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál greinir frá þessu. Ársreikningurinn var lagður fram á stafrænu formi á aðalfundi Auðkennis í gær og verður fundargerð hans samþykkt með rafrænum undirskriftum. Umsýsla í kringum ársreikninginn og aðalfund er því að öllu leyti pappírslaus. Íslenski hugbúnaðurinn CoreData-BoardMeeting var notaður til verksins en hann hefur íslenska hugbúnaðar- og þekkingarfyrirtækið Azazo (áður Gagnavarslan) þróað. Með CoreData BoardMeeting eru stjórnarfundir skipulagðir og í samvinnu við Auðkenni og finnska fyrirtækið Valimo er nú hægt að skrifa undir skjöl og samninga með rafrænum skilríkjum beint í CoreData.Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis, var staddur út í Gróttu á Seltjarnarnesi þegar hann skrifaði undir ársreikninginn.Vísir/Auðkenni „Rafræn skilríki hafa verið að ryðja sér til rúms á Íslandi og þau eru það sem koma skal. Með þeim er bæði hægt að spara pappír og ekki síst fyrirhöfn,“ segir Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis. „Það er til dæmis ekki lengur þörf á að mæta á staðinn til að skrifa undir. Handhafar skrifa einfaldlega undir með rafrænum skilríkjum hvar sem þeir eru staddir í heiminum.“ Sem fyrr segir var skrifað undir ársreikninginn frá sjö stöðu m í heiminum. Óskar Jósefsson, stjórnarformaður Auðkennis, var staddur í Vestmannaeyjum þegar hann skrifaði undir, Marteinn Már Guðgeirsson á Kirkjusandi í Reykjavík, Marina Candi á flugvellinum í Frankfurt í Þýskalandi, Sigurður Rúnarsson á Manhattan í New York, Þór Jes Þórisson í bíl í Hafnarfirði, Matthías Þór Óskarsson endurskoðandi hjá KPMG í Borgartúni í Reykjavík og Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis, var staddur út í Gróttu á Seltjarnarnesi. „Það að skrifa undir ársreikning nú eða önnur gögn með rafrænum hætti er að okkar mati örugg aðferð sem mun ábyggilega verða æ algengari. Í hagræðinu fellst tímasparnaður og varðveisla gagna er algerlega tryggð. Í þessu felst engin breyting á vinnulagi við endurskoðun eða samskiptum okkar við stjórn og starfmenn viðskiptavinarins,“ segir Matthías Þór Óskarsson, endurskoðandi KPMG.Óskar Jósefsson, stjórnarformaður Auðkennis, var staddur í Vestmannaeyjum þegar hann skrifaði undir.Vísir/AuðkenniRafræn skilríki uppfylla íslenskar og evrópskar lagareglur og eru liður í því að auka öryggi og trúnað í rafrænum samskiptum. Skilríkin byggja á öruggustu tækni sem þekkist og miða að því að auka öryggi í rafrænum samskiptum. Rafræn skilríki eru þeim kostum búin að ekki þarf lengur að muna mörg notendanöfn eða leyniorð á netinu. Þá er hægt að nota þau til að skrifa undir skjöl og ekki er gerlegt að breyta skjölum sem hafa verið undirrituð án þess gera undirskrift ógilda. Auðvelt er að rekja hver skrifaði undir – hvað og hvenær. Þegar hafa 100 þúsund rafræn skilríki verið virkjuð hér á landi og hægt er að nota þau hjá um 140 fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Það færist í vöxt að fyrirtæki og opinberar stofnanir noti rafræn skilríki, bæði til auðkenningar sem og til að skrifa undir samninga eða önnur skjöl. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra undirritaði sem dæmi tilkynningu frá ráðuneytinu til Alþingis með rafrænum skilríkjum í desember síðastliðnum. Hefðin hefur verið sú að slíkar tilkynningar séu undirritaðar af ráðherra með bleki á pappír. Í lok febrúar nýtti Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra sér svo CoreData-BoardMeeting þegar hún undirritaði skjal með farsíma á stærstu farsímaráðstefnu heims sem fram fór í Barcelona.Sigurður Rúnarsson var á Manhattan í New York að skrifa undir reikninginn.Vísir/Auðkenni.Þór Jes Þórisson var í bílnum sínum í Hafnarfirði að skrifa undir reikninginn.Vísir/Auðkenni
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent