Formúla 1

Bílskúrinn: Hvað er að frétta eftir Malasíu?

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þröngt í fyrstu beygju kappakstursins.
Þröngt í fyrstu beygju kappakstursins. Vísir/Getty
Bretinn Lewis Hamilton á Mercedes vann keppnina í Malasíu, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji.



Nico Hulkenberg á Force India náði góðum árangri hann ræsti í sjöunda sæti en endaði keppnina í fimmta sæti sem er góður árangur. Greinilegt að Force India bíllinn er góður, þegar hann kemst af stað. Liðsfélagi Hulkenberg, Sergio Perez komst ekki af stað í keppnina. Bíll hans bilaði á leiðinni út af þjónustusvæðinu fyrir keppni.

Mikill hasar var í keppninni og margt gerðist. Hvað er mikilvægast upp á framhaldið?

Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Hamilton ánægður með helgina.Vísir/Getty
Þrenna hjá Hamilton

Hamilton var einfaldlega óstöðvandi. Hann náði þrennunni eftirsóttu, náði ráspól, hraðasta hring keppninnar og vann keppnina. Hann bætti þar með upp fyrir að hafa dottið úr keppni í Ástralíu.

Nico Rosberg náði að fylgja honum fast á eftir í keppninni, eftir að hafa komist fram úr Vettel í ræsingu. Eftir það stjórnaði Mercedes keppninni til loka.

Skipt um framvæng á bíl Ricciardo.Vísir/Getty
Ófarir Ricciardo

Lætin hófust hjá Daniel Ricciardo á Red Bull á 41. hring. Þá tók hann þjónustuhlé sem fór úrskeiðis. Hann ók af stað með eitt laust dekk. Þegar verið var að festa það dekk á, virðist tjakkurinn hafa brotið framvænginn.

Framvængurinn gerði svo gat á hægra framdekkið og þurfti hann því að koma aftur inn á þjónustusvæði. Ricciardo hætti svo keppni á hring 52 til að spara vélina, hann var komin rúmlega 2 hringjum á eftir keppinautum sínum.

Maldonado í MalasíuVísir/Getty
Refsingar

Jules Bianchi á Marussia varð fyrstur til að fá nýja 5 sekúndna refsingu. Bianchi keyrði á Pastor Maldonado á Lotus í annarri beygju.



Ökumaður þarf þá að bíða á þjónustusvæðinu í 5 sekúndur áður en vinna má hefjast við bíl hans. Ef ökumaður á ekki eftir að taka þjónustuhlé verður tímanum bætt við heildartíma hans að lokinni keppni.



Kevin Magnussen á McLaren hlaut sömu refsingu fyrir að aka aftan á Kimi Raikkonen og sprengja dekk á Ferrari bíl Raikkonen.

Bæði Magnussen og Bianchi fengu tvo punkta á leyfið sitt. Allir ökumenn hófu árið með hreinan skjöld. Ef einhver fær 12 punkta, verður viðkomandi í banni eina keppni.



Ricciardo veðrur færður aftur um tíu sæti á ráslínu í næstu keppni, vegna þess að hann fór af stað með laust dekk.

Rosberg og Hamilton á verðlaunapallinumVísir/Getty
Er Mercedes ósigrandi?

Hamilton hefur sjálfur sagt að Red Bull sé alveg á hælum Mercedes. Red Bull bílarnir séu jafn fljótir í gegnum beygjur. Þá vanti meiri hraða á beinum köflum.

Væntingar til Mercedes eru gríðarlega miklar. Strax á æfingum í vetur varð ljóst að liðið hefði forskot. Nú er spurning hversu lengi önnur lið verða að ná Mercedes.

Stefano Domenicali liðsstjóri Ferrari segir að bilið frá þeim í fremstu bíla sé ekki eins langt og það líti út fyrir að vera. Hann spáir því að Ferrari ná miklum framförum á næstunni.

Massa læsir dekki í keppninni.Vísir/Getty
Liðskipanir Williams

„Valtteri er fljótari en þú, ekki halda aftur af honum,“ var sagt við Felipe Massa sem var næsti bíll á undan Valtteri Bottas í hinum Williams bílnum.

Á sama tíma fékk Bottas að heyra að hann ætti að aka fram úr Massa. Ekkert varð þó af því að Bottas kæmist fram úr.

Massa hefur áður fengið slík skilaboð í keppni, þá hjá Ferrari. Hann hefur þá vikið en nú vill Massa láta líta á sig sem aðalökumann Williams. Hann er talsvert reynslumeiri en Bottas sem er á öðru tímabili sínu í Formúlu 1. Massa hóf keppni 2002, þegar Bottas var 13 ára.

Nú í vikunni mun gamli aðstoðarmaður Massa, Rob Smedley, ganga til liðs við Williams. Líklegt þykir að hann muni standa með sínum manni og neita að gefa slíka skipun í framtíðinni.



Næsta keppni fer fram næstu helgi í Bahrain.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól í Malasíu

Lewis Hamilton mun ræsa fyrstur í malasíska kappakstrinum á morgun eftir tímatöku dagsins. Hann mun deila fremstu röðinni á ráslínu með Sebastian Vettel. Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji.

Samantekt frá Malasíukappakstrinum í formúlu 1

Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Malasíu í morgun og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Bretinn Lewis Hamilton setti hraðasta hring á fyrri æfingunni í nótt á Mercedes bíl sínum. Hann varð fjórði á seinni æfingunni á Sepang brautinni í Malasíu. Nico Rosberg varð þriðji á Mercedes bíl sínum á fyrri æfingunni en fljótastur á seinni æfingunni. Rosberg er spenntur fyrir keppninni og vill gjarnan reyna að ná öðrum sigri sem fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×