Viðskipti innlent

Gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Fráfarandi formaður samtaka verslunar og þjónustu fer hörðum orðum um forgangsröðun ríkisstjórninnar og kallar eftir aðgerðum. Ríkisstjórnin eigi frekar að opna glugga en að þyrla upp ryki.



Aðalfundur Samtaka verslunar og þjónustu fór fram í dag. Margrét Kristmannsdóttir, fráfarandi formaður, gagnrýndi ríkisstjórnina nokkuð harðlega í síðustu ræðu sinni sem formaður.

„Það sem við vorum að benda ríkisstjórninni á var að einblína á stóru málin - ekki rjúfa friðinn hér í landi. Það eru gríðarlega stór verkefni framundan sem við verðum í sameiningu að leysa. Við verðum að snúa bökum saman,“ segir Margrét.

Margrét hvetur ríkisstjórnina til að standa við gefin loforð og lækka vörugjöld og tolla. „Aðilar vinnumarkaðarins þurfa á að halda að ríkisstjórnin standi þétt við bakið á þeim. Það hefur hún ekki gert hingað til en hefur tækifæri til að bæta ráð sitt.“

Ömurleg staða

Í ræðu sinni talaði Margrét um þann veruleika að víða um land væru verslanir að loka. Verslunarpláss á besta stað stæðu auð. Það sé ömuleg staða fyrir atvinnugreinina og ömurleg staða fyrir þjóðina.

„Það vantar kaupmátt hér á landi - heimilin hafa hreinlega ekki nóg á milli handanna þegar kemur að því að fara í verslanir og við þurfum smám saman að breyta því,“ segir Margrét.

Margrét Sanders tók við formennsku í dag. Fyrirrrennari hennar telur verslun á Íslandi enn eiga langt í land með að ná fyrri hæðum.

„Verslun á enn langt í land með að ná þeirri stöðu sem hún hafði fyrir nokkrum árum. Stjórnvöld þurfa virkilega að tryggja að verslun hér á landi búi við samkeppnishæf skilyrði og sem hún gerir því miður ekki,“ sagði Margrét Kristmannsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×