Viðskipti innlent

Margrét Sanders nýr formaður Samtaka verslunar og þjónustu

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Margrét Sanders, nýkjörinn formaður Samtaka verslunar og þjónustu
Margrét Sanders, nýkjörinn formaður Samtaka verslunar og þjónustu Mynd/Vilhelm
Aðalfundur Samtaka verslunar og þjónustu var haldinn í dag, 20. mars. Margrét Sanders hjá Deloitte ehf. var kjörin formaður, og tók hún við af Margréti Kristmannsdóttur hjá Pfaff ehf.

Endurkjörnir meðstjórnendur voru Guðrún Jóhannesdóttir hjá Kokku ehf., Margrét G. Flóvenz hjá KPMG ehf. og Hörður Gunnarsson hjá Olíudreifingu ehf.

Nýkjörnir stjórnarmenn voru Ari Edwald hjá 365 miðlum ehf., Árni Stefánsson hjá Húsasmiðjunni ehf. og Eysteinn Helgason hjá Kaupási ehf.

Þrír stjórnarmenn víkja úr stjórn eftir fimm ára setu, en það eru fráfarandi varaformaður Finnur Árnason hjá Högum hf., Guðmundur Halldór Jónsson hjá Byko ehf., og Sigríður Margrét Oddsdóttir hjá Já upplýsingaveitum ehf.

Á fundinum voru samþykktar tillögur þess efnis að að stjórnarmenn megi sitja í stjórn að hámarki sex ár í stað fimm sem áður var.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×