Viðskipti innlent

Uppboðsmörkuðum fjölgar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/GVA
Uppboðsmörkuðum vegna viðskipta með greiðslumark mjólkur hefur verið fjölgað úr tveimur í þrjá á ári með nýrri reglugerð. Bbl.is greinir frá þessu.

Uppboðsmarkaðir verða hér eftir sem hingað til haldnir 1. apríl og 1. nóvember en við bætist uppboðsmarkaður 1. september ár hvert. Skal skila tilboðum vegna þess markaðar eigi síðar en 25. Ágúst en skiladagar tilboða fyrir hina markaðina verða óbreyttir, 25. mars og 25. október.

Þau viðskipti sem verða með greiðslumark á uppboðsmörkuðum í apríl og september ná eingöngu til ónotaðs greiðslumarks seljenda á yfirstandandi framleiðsluári. Viðskipti með greiðslumark á markaði 1. nóvember gilda hins vegar einungis um greiðslumark næstkomandi framleiðsluárs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×