Viðskipti innlent

Meirihluti vill léttvín í stórmarkaði

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Karlar eru hlynntari því að leyft verði að selja léttvín í stórmörkuðum en konur.
Karlar eru hlynntari því að leyft verði að selja léttvín í stórmörkuðum en konur. Vísir/GVA
Tæplega 61 prósent landsmanna eru hlynnt sölu léttvíns í stórmörkuðum. Þetta kemur fram í könnun sem MMR gerði fyrir Viðskiptablaðið.

Tæplega 30 prósent eru frekar eða mjög andvíg og tæplega 10 prósent hvorki hlynnt né andvíg.

Karlar eru hlynntari því að leyft verði að selja léttvín í stórmörkuðum en konur, rúmlega 50 prósent karla eru mjög hlynntir leyfinu en aðeins tæplega 30 prósent kvenna.

Þeir sem yngri eru eru mun hlynntari léttvíni í stórmörkuðum en eldra fólkið, 79 prósent fólks á aldrinum 18 til 29 ára eru mjög eða frekar hlynn en aðeins 31 prósent þeirra sem eru 68 ára eða eldri.

Námsmenn eru hlynntastir leyfinu þegar svör eru skoðuð eftir starfi en þeir sem eru útivinnandi eru mótfallnastir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×