Viðskipti innlent

Búið að ganga frá sölu Lykils

Haraldur Guðmundsson skrifar
Sala MP banka á Lykli er sögð liður í að skerpa enn frekar á sérhæfðri bankaþjónustu bankans.
Sala MP banka á Lykli er sögð liður í að skerpa enn frekar á sérhæfðri bankaþjónustu bankans.
Lýsing hf. hefur keypt rekstur Lykils, eignaleigusviðs MP Banka, af bankanum. Samningar um kaupin voru undirritaðir föstudaginn 21. mars síðastliðinn.

Í tilkynningu Lýsingar um kaupin segir að sala MP banka á Lykli sé liður í því að skerpa enn frekar á sérhæfðri bankaþjónustu bankans og um leið að einfalda skipulag hans og auka áherslu á kjarnastarfsemi.

„Kaup Lýsingar á Lykli falla einnig vel að fjármögnunarstarfsemi Lýsingar og áætlunum félagsins um sífellt öflugri starfsemi og markaðssókn," segir í tilkynningunni. 

Kaupin eru háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins og verða að því fengnu tilkynnt viðskiptavinum Lykils með bréfi.

Lilja Dóra Halldórsdóttir, forstjóri Lýsingar, segir kaupin á Lykli undirstrika áform félagsins um frekari uppbyggingu.

„Í áætlunum Lýsingar um öflugri starfsemi félagsins felst meðal annars að bjóða upp á nýjungar á sviði fjármögnunar eins og markaðurinn varð var í upphafi ársins þegar kynnt voru ný vaxta- og verðbótalaus lán. Við hlökkum til samstarfsins við viðskiptavini Lykils og fögnum þessari viðbót í starfsemi Lýsingar,“ segir Lilja Dóra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×