Viðskipti innlent

Um 26,4 milljarðar króna til ríkisins vegna arðgreiðslna

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Félög í Kauphöllinni greiða samtals út 48,1 milljarð króna vegna ársins 2013.
Félög í Kauphöllinni greiða samtals út 48,1 milljarð króna vegna ársins 2013. Vísir/GVA
Bankarnir og félög í Kauphöllinni greiða samtals út 48,1 milljarð króna vegna ársins 2013. Hagfræðideild Landsbankans greinir frá þessu í Vikubyrjun.

Ríkissjóður fékk í sinn hlut 21 milljarð vegna eignarhlutar í Landsbankanum, Arion banka og Íslandsbanka.

Að auki má reikna með að ríkissjóður fái til sín 20 prósenta tekjuskatt af öðrum arði en eigin.

Í heildina gætu því komið um 26,4 milljarðar króna í ríkiskassann vegna arðgreiðslna ársins 2013, eða 55 prósent af heildar útgreiddum arði félaganna.

Vísir/Landsbankinn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×