Viðskipti innlent

Páskabjórinn uppseldur hjá Vífilfelli

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Landsmenn eru sólgnari í páskabjór í ár en innlendir framleiðendur bjuggust við.
Landsmenn eru sólgnari í páskabjór í ár en innlendir framleiðendur bjuggust við. Vísir/Vífilfell
Vífilfell hefur þurft að framleiða meira magn af páskabjór til að bregðast við aukinni eftirspurn.

Allur páskabjórinn sem áætlað var að framleiða fyrir páskahátíðina er þegar kominn í verslanir, þremur vikum fyrir páska, og því uppseldur hjá framleiðanda. Bruggmeistarar Vífilfells á Akureyri hafa þegar hafist handa við að framleiða aukamagn til að eiga ef bjórinn klárast í vínbúðum fyrir páska.

Uppfærðar áætlanir Vífilfells gera ráð fyrir að salan á Víking páskabjór verði um þriðjungi meiri en í fyrra. Sala á páskabjór hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin. Hún náði hámarki fyrir hrun en dalaði svo nokkuð áður hún óx síðan á ný eftir því sem leið frá hruni. Í ár verður framleiðslan áttfalt meiri en hún var árið 2009.

Árstíðabundin bjórframleiðsla hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi og sést það ekki síst í mikilli sölu á jólabjór undanfarin ár. Það sér ekki fyrir endann á þessum vinsældum sérbjóranna og páskahátíðin virðist vera orðinn lítill eftirbátur jólanna á bjórhátíðardagatali landans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×