Viðskipti innlent

Verð á fatnaði hækkar og bensínverð lækkar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,9%.
Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,9%. vísir/hari
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2014 hækkaði um 0,24% frá fyrra mánuði.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,23% frá febrúar.

Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,9%. Verð á bensíni og olíum lækkaði um 2,2%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,2% sem jafngildir 0,8% verðbólgu á ári.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2014 gildir til verðtryggingar í maí 2014.

Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.287 stig fyrir maí 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×