Viðskipti innlent

Isavia semur um þjónustu fyrir fatlaða flugfarþega

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Með því að bjóða sérfræðingum á sviði þjónustu að koma að verkinu verður hægt að veita betri þjónustu og byggja upp frekari sérfræðiþekkingu fyrir fatlaða og hreyfihamlaða flugfarþega.
Með því að bjóða sérfræðingum á sviði þjónustu að koma að verkinu verður hægt að veita betri þjónustu og byggja upp frekari sérfræðiþekkingu fyrir fatlaða og hreyfihamlaða flugfarþega. VÍSIR/VALLI
Isavia, sem sér um rekstur flugvallarins í Keflavík, hefur samið við Securitas um þjónustu við fatlaða og hreyfihamlaða flugfarþega sem þurfa að komast leiðar sinnar um flugvöllinn. Þetta kemur fram á vef Öryrkjabandalagsins.

Þjónusta Securitas uppfyllir íslenska og evrópskar reglugerðir um réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra flugfarþega.

Aðstoðin nær ekki einungis til fatlaðra og hreyfihamlaðra heldur einnig til þeirra sem vegna aldurs eða veikinda eiga erfitt með að ferðast hjálparlaust. Þjónustan verður sniðin að þörfum hvers og eins.

Útboðið er eitt stærsta þjónustuútboð Isavia á síðustu árum og er áætlað virði samningsins yfir 30 milljónir á ári.

Með því að bjóða sérfræðingum á sviði þjónustu að koma að verkinu verður hægt að veita betri þjónustu og byggja upp frekari sérfræðiþekkingu fyrir fatlaða og hreyfihamlaða flugfarþega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×