Spá bjartara hagkerfi Samúel Karl Ólason skrifar 27. mars 2014 15:01 Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, kynnti hagspána á blaðamannafundi. Mynd/ASÍ
Hagdeild ASÍ spáir 3,2 prósenta hagvexti í ár, 3,4 prósenta á næsta ári og 3,5 prósenta hagvexti árið 2016. Hagspá ASÍ var kynnt á blaðamannafundi fyrr í dag. Í spánni segir þó að blikur sé á lofti og hagvöxtur sé að of miklu leyti drifinn áfram af vaxandi einkaneyslu en ekki aukinni verðmætasköpun. Hagspána má lesa hér og tilkynningu frá ASÍ má sjá hér. „Fjárfesting er enn nálægt sögulegu lágmarki. Áætlað er að í fyrra hafi fjárfesting verið um 13,6% af landsframleiðslu. Þetta hlutfall er um 20% hjá þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við,“ segir í inngangi skýrslunnar. Árið 2011 settu stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins sér að ná hlutfallinu í 20 prósent fyrir árið 2014, en útlit er fyrir að hún verði einungis 17,8 prósent af vergri landsframleiðslu í lok árs 2016. Þá segir að áform stjórnvalda um að lækka skuldir heimilanna muni hafa áhrif. Með þeim muni ráðstöfunartekjur og hrein eign heimila aukast og einnig hafi það áhrif á væntingar heimila. „Allar líkur eru á því að aðgerðin leiði til aukinnar neyslu. Þrátt fyrir að umfang aðgerðarinnar sé ekki meira en aðgerða á síðasta kjörtímabili má búast við að áhrifin verði meiri á einkaneysluna.“ Búast má við að vöxtur innflutnings verði hraðari en vöxtur útflutnings og að augljós veikleikamerki séu á hagkerfinu. Þar megi nefna óvissu um framtíðarstefnu í peningamálum, gjaldeyrishöft og minni afgangur af viðskiptum við útlönd og óvissa setji þrýsting á krónuna til lækkunar sem skili sér í verðlag. Þetta endurspeglist í spá hagdeildar ASÍ sem spáir tæplega fjögurra prósenta verðbólgu á næsta ári.
Mest lesið Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira