Viðskipti innlent

Íslandsbanki sýknaður af 400 milljóna kröfu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm/GVA
Steingrímur Wernersson stefndi Íslandsbanka og krafðist þess að bankinn yrði dæmdur til að endurgreiða sér tæpar 400 milljónir krónur ásamt dráttarvöxtum. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að bankanum bæri að endurgreiða Steingrími.

Umrædd upphæð var færð af reikningi Steingríms þann 19. maí 2006 og inn á reikning Milestone, en hann átti þá stóran hlut í því fyrirtæki. Steingrímur sagði þó millifærsluna hafa verið gerða einhliða af Glitni, án samráðs og samþykkis hans, og fór fram á endurgreiðslu upphæðarinnar.

Íslandsbanki, sem þá hét Glitnir, hélt því fram að millifærslan hafi verið liður í fjármögnun kaupa Milestone á 33,4 prósentum í Sjóvá.

Dómurinn féllst á kröfu hans og dæmdi Glitni til að greiða honum tæpar 400 milljónir króna.

Hæstiréttur hefur nú snúið þeirri ákvörðun við og fellt málskostnað í héraði og Hæstarétti niður. Ástæða þess er að eftir umrædda millifærslu á reikning Milestone, gátu milljónirnar 400 ekki verið hluti innistæðu tékkareiknings né til skuldbindinga vegna hennar. Steingrímur hafi heldur ekki leitt að því haldbær rök að Íslandsbanki hafi með samningi eða á annan hátt skuldbundið sig til greiðslu kröfunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×