Methagnaður hjá Verði Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2014 14:51 Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar. MYND/VÖLUNDUR
Methagnaður var hjá Verði yfir árið 2013 en þetta kemur fram í ársreikningi félagsins. Heildarhagnaður ársins eftir skatta var 506 milljónir króna en 431 milljónir króna á árinu áður. „Rekstur félagsins gekk vel á síðasta ári og er afkoman sú besta í sögu félagsins sem er sérlega ánægjulegt. Samsetta hlutfallið heldur áfram að lækka, eiginfjárhlutfallið að styrkjast og gjaldþolið að hækka,“ segir Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar. Guðmundur segir að þessi árangur skili sér í sterkara félagi og góðri arðsemi eigin fjár en hún var hæst hjá Verði á síðasta ári í samanburði við önnur vátryggingafélög á Íslandi. „Þá hefur viðskipavinum fjölgað jafnt og þétt ár frá ári sem hefur skilað sér í aukinni hlutdeild á tryggingamarkaði. Ég þakka starfsfólki félagsins þá miklu umbreytingu sem orðið hefur á félaginu á fáeinum árum. Við erum stolt af þessum góða árangri.“Mesti hagnaður í sögu félagsins Hagnaður Varðar árið 2013 nam 623 m.kr. fyrir tekjuskatt en var 515 m.kr. árið 2012 og nemur aukningin 21%. Að teknu tilliti til skatta var hagnaður tímabilsins 506 m.kr. samanborið við 431 m.kr. árið 2012. Um er að ræða mesta hagnað í sögu félagsins en rekstur Varðar hefur skilað vaxandi hagnaði síðustu fimm ár. Framlegð af vátryggingastarfseminni nam 225 m.kr. á árinu. Samsetta hlutfallið heldur áfram að lækka og var 97,5% árið 2013 samanborið við 99,1% árið 2012 sem sýnir að vátryggingarekstur Varðar styrktist enn frekar á liðnu ári. Eiginfjárhlutfall félagsins er sterkt og gjaldþol þess hefur hækkað síðustu ár. Iðgjöld ársins hækkuðu um 8% milli ára og námu 4.974 m.kr. árið 2013 samanborið við 4.613 m.kr. árið 2012. Tjón ársins námu 3.507 m.kr. á síðasta ári og jukust um tæp 6% milli ára. Fjárfestingatekjur námu 485 m.kr. í fyrra og lækkuðu um 1% milli ára en helsta skýringin er lægri ávöxtun skuldabréfa. Verðbréfaeign félagsins nam 5.700 m.kr. í árslok 2013, bundið fé nam 546 m.kr. og handbært fé 1.607 m.kr.Efnahagurinn styrkist Heildareignir félagsins í árslok 2013 námu 9.663 m.kr. í samanburði við 9.020 m.kr. í árslok 2012 og nemur hækkunin um 7%. Eigið fé í lok árs 2013 nam 3.019 m.kr. en í árslok 2012 nam það 2.513 m.kr. Eiginfjárhlutfall er sterkt en það var 31,6% í lok árs og arðsemi eiginfjár var 19% á árinu.
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent