Vinna verðmæti úr 3.000 tonnum af fiskroði Svavar Hávarðsson skrifar 11. mars 2014 07:00 Áferð kollagenduftsins verðmæta má líkja við sykur, en það gefur mikla möguleika til framleiðslu, ekki síst í heilsuiðnaði. Það er Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Sjávarklasans, sem hér handleikur verðmætt efnið. Fréttablaðið/GVA
Áætlanir um að setja upp verksmiðju til framleiðslu á kollageni úr fiskroði ætla að ganga eftir. Raunhæft er talið að í verksmiðjunni verið unnið úr tvö til þrjú þúsund tonnum af fiskroði á ári. Innan fárra ára er ekki ólíklegt að fyrirtæki sem vinna afurðir úr fiskroði skapi 100 til 200 manns atvinnu. Með verksmiðjunni er hringnum lokað hvað varðar vinnslu aukaafurða úr íslensku sjávarfangi, en fiskroð eru að stórum hluta flutt út frosin. „Í síðustu viku unnum við 20 tonn af roði og breyttum því í tvö tonn af kollagendufti sem má selja inn á fæðubótarmarkaðinn eða til fyrirtækja í heilsuiðnaði,“ segir Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans, en það er fyrirtæki á vegum klasans Collagen ehf., sem hóf samstarf við fyrirtæki á Spáni árið 2012 við að vinna kollagen úr fiskroði. „Þetta er í raun síðasta íslenska aukaafurðin sem er flutt út óunnin að mestu leyti. Þegar verkefnið er komið í fullan gang verða allar aukaafurðir þorsksins unnar hérlendis og hægt að vinna efni úr öllu sem þorskurinn gefur af sér,“ segir Þór og bendir á að í þessum efnum séu Íslendingar með algera sérstöðu í heiminum. Fjárfestingin við að setja verksmiðjuna á fót er metin á 500 milljónir fyrir utan húsnæði. Þór útskýrir að Collagen ehf. leigi tækjabúnað hjá fyrirtæki á Spáni til að undirbúa kollagenframleiðslu í verksmiðju hér heima, en þar er meðal annars verðandi verksmiðjustjóri í þjálfun. Verksmiðjan verður hins vegar sett upp og rekin undir merkjum Codland í Grindavík, sem er í eigu sjávarútvegsfyrirtækjanna Vísis hf. og Þorbjarnar hf. þar í bæ. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan verði sett upp á Reykjanesi, og nýti orku frá Reykjanesvirkjun enda verður verksmiðjan sett upp í næsta nágrenni við virkjunina. Framleiðsla á kollageni gefur fjölbreytt tækifæri, enda er um öflugasta byggingarprótein líkamans að ræða. Vinnslan margfaldar jafnframt virði fiskroðsins sem hráefnis, og ekki fjarri lagi að með því að selja kollagen í smáum neysluskömmtum til neytenda sé virðisaukinn fimmtugfaldur. Þór bendir jafnframt á að með kollagenframleiðslu innanlands skapast fjölmörg tækifæri til frekari atvinnuþróunar sem byggir á efninu. Í þessu samhengi má nefna að vörur Kerecis, sem hefur höfuðstöðvar sínar á Ísafirði, innihalda kollagen og Omega3-olíur úr fiskiroði, og nýtast í sárameðferð meðal annars. Þór nefnir einnig fyrirtækið Ankra, sem er með aðsetur í Húsi sjávarklasans, sem hyggst markaðssetja snyrtivörur og fæðubótarefni úr kollageni, en einnig Sjávarleður á Sauðárkróki sem framleiðir tískuvörur úr roði – auk hugmynda um fóðurframleiðslu úr roði. „Ég sé fyrir mér að 100 til 200 manns muni innan fárra ára vinna að framleiðslu sem byggir á fiskroði – hráefni sem lengi var lítils virði,“ segir Þór.
Mest lesið Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Viðskipti innlent „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Flügger rannsakað fyrir brot á viðskiptaþvingunum Viðskipti erlent Íslendingur missir leyfið fyrir KFC í Danmörku eftir meiriháttar hneyksli Viðskipti erlent Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Viðskipti innlent Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Viðskipti innlent Áætla að húsnæði á Íslandi sé verulega vantryggt fyrir bruna Neytendur Opinn fundur HMS um endurmat brunabótamats Neytendur Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Viðskipti innlent Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Sjá meira