Viðskipti innlent

Hluthafar VÍS fá um 1,8 milljarða

Haraldur Guðmundsson skrifar
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS. Vísir/Vilhelm
Aðalfundur tryggingafélagsins VÍS samþykkti í dag tillögu stjórnar um að greiða hluthöfum arð sem nemur 1.831 milljón króna, um 0,73 krónur á hlut, fyrir árið 2013.

Arðgreiðslan nemur um 85 prósentum af hagnaði félagsins á síðasta ári. Þá skilaði reksturinn 2.154 milljóna króna hagnaði samanborið við 3.025 milljóna hagnað árið 2012.  

Aðalfundurinn kaus einnig nýja aðalstjórn félagsins. Í henni eru; Ásta Dís Óladóttir, Guðrún Þorgeirsdóttir, Friðrik Hallbjörn Karlsson, Helga Jónsdóttir og Steinar Þór Guðgeirsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×