Viðskipti innlent

Samkomulag um fjármögnun Eyrir Invest

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Eyrir Invest á 29 prósenta hlut í Marel.
Eyrir Invest á 29 prósenta hlut í Marel. Vísir/Anton
Eyrir Invest hefur nýlega náð samkomulagi um fjármögnun við innlenda fjármálastofnun. Frá þessu greinir á heimasíðu Eyris.

Samkomulagið felur í sér fulla fjármögnun fjárhagslegra skuldbindinga félagsins næstu misseri.

Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingarfélag en lykileignir félagsins eru 29 prósenta hlutur í Marel, 17 prósenta eignarhlutur í Fokker Technologies og 17 prósenta eignarhlutur í Stork Technical Services.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×