Viðskipti innlent

KPMG og Háskólinn á Bifröst gera samstarfssamning

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vilhjálmur rektor og Hlynur Sigurðsson KPMG.
Vilhjálmur rektor og Hlynur Sigurðsson KPMG. mynd/aðsend
Samstarfssamningur Háskólans á Bifröst og KPMG sem undirritaður var í dag á Bifröst felur í sér víðtækt samstarf til eflingar á faglegri þekkingu nemenda, kennara og starfsmanna KPMG á sviði opinberrar stjórnsýslu, reikningshalds, endurskoðunar og skattaréttar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá háskólanum.

Markmiðið er að efla námsframboð Háskólans á Bifröst og styðja við atvinnuuppbyggingu á starfssvæði KPMG á Vesturlandi. KPMG leggur mikið upp úr þjónustu á landsvísu og er með starfsstöðvar víða um land m.a. í Borgarnesi og í Stykkishólmi.

Sérfræðingar KPMG munu koma að kennslu við Háskólann á Bifröst, styðja valda nemendur við gerð lokaverkefna og taka þátt í rannsóknarvinnu og kynningu rannsókna.

Fram kemur í tilkynningunni að leitast verði við að tengja rannsóknarvinnu akademískra starfsmanna Háskólans á Bifröst við ýmis viðfangsefni KPMG til þess að efla almenna þekkingu á fagsviðum skólans og KPMG.  

Háskólanemar á Bifröst geta leitað eftir starfsnámi hjá KPMG. Háskólinn á Bifröst mun gefa KPMG kost á að nýta gistikennara til fyrirlestrahalds í húsakynnum KPMG og vinna saman að skipulagningu funda og ráðstefna um áhugaverð málefni.

Samstarfssamningurinn hefur mikla þýðingu fyrir bæði Háskólann á Bifröst og KPMG. Með samningnum styrkir Háskólinn á Bifröst tengsl sín við atvinnulífið í landinu og tryggir aðkomu færustu sérfræðinga að faglegu starfi skólans.

KPMG leggur með samstarfinu mikilvægt framlag til aukinnar þekkingar og fagmennsku í íslensku atvinnulífi og  fær á móti ákjósanlegan vettvang fyrir fræðilegan áhuga sérfræðinga sinna sem vilja viðhalda stöðu sinni í fremstu röð á fagsviðum sínum og ennfremur aðgang að nemendum sem hugsanlega verða framtíðarstarfsmenn félagsins eða viðskiptavina þess. 

Samstarfssamningurinn dregur vel fram hvernig atvinnulíf og menntastofnanir geta unnið saman til þess að bæta hag alls samfélagsins. KPMG og Háskólinn á Bifröst vænta farsællar og árangursríkrar samvinnu til langrar framtíðar á grundvelli samningsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×