Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki gefur út jarðvangaöpp Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2014 13:49 Leifur Björn Björnsson og Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir. mynd/aðsend
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Locatify hefur gefið út öppin Gea Norvegica og Magma Geopark í samstarfi við jarðvanga í Noregi en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Locatify. Smáforritin eru sett upp í Creator CMS kerfi Locatify sem gerir notendum kleift að setja upp sín eigin leiðsögu- og ratleikjaforrit á einfaldan hátt. Í nýju öppunum er hægt að hlaða niður snjallleiðsögnum, hlusta á frásagnir, skoða myndir og kort án þess að vera á söguslóðum eða nota GPS til að virkja efnið sjálfkrafa á réttum stöðum. Jafnframt er gestum jarðvanganna boðið í ratleiki þar sem þeir læra að þekkja umhverfið á meðan á heimsókn stendur. Jarðvangarnir sjá sér hag í að nota forritin jafnt fyrir skólahópa og ferðalanga sem leika sér um leið og þeir kynnast sérstöðu landsvæðanna. Locatify hefur áður gefið út leiðsagnaforritið SmartGuide North Atlantic sem m.a. hefur verið notað til að setja upp leiðsagnir víða um Ísland og á Norðurlöndunum. Þá hefur fyrirtækið gefið út ratleikjaforritið TurfHunt sem hefur verið notað til að setja upp ratleiki m.a. fyrir skóla og starfsmannafélög þar sem leikendur keppa utandyra til sigurs. Mörg öpp hafa verið hönnuð í vefkerfi Locatify og sérmerkt aðallega fyrir erlenda viðskiptavini. Alls hafa 13 öpp verið gefin út og sett upp í kerfi Locatify þar á meðal; Iceland Film Location sem í eru myndbrot úr íslenskum kvikmyndum, Touround í Þýkalandi og Lúxemborg og StrollOn um borgir í Evrópu. Auk þess hefur Locatify forritað annars konar öpp; ferðavenjukönnun sem skráir ferðir þátttakenda, viðburðaforrit og ferðahandbók. Eigendur fyrirtækisins eru þau Leifur Björn Björnsson og Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira