Íbúðalánasjóður yrði lagður niður Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 19. mars 2014 09:42 Meðal þess sem lagt er til í skýrslunni er að nýtt húsnæðislánakerfi byggi á því að húsnæðislán verði veitt af húsnæðislánafélögum. VÍSIR/GVA
Lagt er til, að íbúðalánasjóður verði lagður niður í núverandi mynd og nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi verði að danskri fyrirmynd, í nýrri skýrslu KPMG og Analytica. Skýrslan er innlegg í vinnu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála. Stjórnin reiknar með því að skila félags- og húsnæðismálaráðherra tillögum sínum í lok apríl. Ekki er talið ráðlegt að viðhalda starfsemi Íbúðalánasjóðs í núverandi mynd. Lagt er til að Íbúðalánasjóður hætti alfarið að veita ný útlán og starfsemi hans verði skipt í tvo hluta. Annars vegar nýja stofnun, Húsnæðisstofnun, sem taki við félagslegu hlutverki Íbúðalánasjóðs og öðrum veigamiklum þáttum sem snúa að framkvæmd húsnæðisstefnu stjórnvalda. Hins vegar stofnun sem annist umsjón með núverandi safni útlána og skulda þar til það er runnið út eða hugsanlega selt. Þetta sé nauðsynlegt til þess að setja skýr skil á milli vandans sem stafar af starfsemi Íbúðalánasjóðs í fortíð og framtíð.Viðskiptabankarnir þrír myndu stofna sitt félag hver Meðal þess sem lagt er til í skýrslunni er að nýtt húsnæðislánakerfi byggi á því að húsnæðislán verði veitt af húsnæðislánafélögum. Þau félög verði starfsleyfisskyld fjármálafyrirtæki og um þau verði sett lög. Félögin megi eingöngu lána til húsnæðiskaupa og fjármagna útlán með útgáfu sértryggðra skuldabréfa sem skráð verða á markaði. Félögin muni ekki stunda neina aðra starfsemi. Gert er ráð fyrir því að fjögur til fimm húsnæðisfélög verði til. Einn af grundvallarkostum þessa fyrirkomulags samkvæmt skýrslunni snýr að jafnvægi á milli útlána og fjármögnunar húsnæðislánafélaga. Gerðar yrðu kröfur um hæfilegt jafnvægi á milliútlána og útistandandi skuldabréfa viðkomandi félaga þar sem tekið er tillit til aðstæðna á íslenskum mörkuðum. Líklegt yrði að stóru viðskiptabankarnir þrír myndu stofna sitt félag hver og ein. Einnig megi ætla að minni fjármálastofnanir komi sér saman um stofnun slíks félags og sama gæti gilt um lífeyrissjóðina.Afsláttur af sérstökum bankaskatti Til að innleiðing kerfisins heppnist vel yrði mikilvægt að sem mest af fjármögnun íbúðarhúsnæðis færi í gegnum húsnæðislánafélög. Því er lagt til að stjórnvöld búi til hvata, til dæmis með því að veita undanþágu eða afslátt af sérstökum bankaskatti. Jafnframt er lagt til að lífeyrissjóðum verði gert að færa ný húsnæðisveðlán sín í húsnæðislánafélög. Lagt er til að Íbúðalánasjóður hætti alfarið að veita ný útlán og starfsemi hans verði skipt í tvo hluta. Annars vegar nýja stofnun sem taki við félagslegu hlutverki Íbúðalánasjóðs og öðrum veigamiklum þáttum sem snúa að framkvæmd húsnæðisstefnu stjórnvalda. Hins vegar stofnun sem annist umsjón með núverandi safni útlána og skulda þar til það er runnið út eða hugsanlega selt.
Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira