Viðskipti innlent

Aflandskrónueigendur vildu fá of mikið fyrir krónurnar

Haraldur Guðmundsson skrifar
Útboð Seðlabankans eru liður í losun hafta á fjármagns­viðskiptum.
Útboð Seðlabankans eru liður í losun hafta á fjármagns­viðskiptum. Vísir/Daníel
Seðlabankinn ákvað að hafna öllum tilboðum í gjaldeyrisútboðum bankans í gær því eigendur aflandskróna vildu talsvert meiri gjaldeyri fyrir sínar krónur en í síðasta útboði bankans í byrjun febrúar. Sú staða leiddi til þess að of mikið verðbil var á milli tilboða í krónuútboði bankans og gjaldeyrisútboðinu. 

Þetta sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á kynningarfundi bankans í morgun þar sem farið var yfir vaxtaákvörðun bankans. 

„Í raun og veru hefði einungis verið hægt að para einn milljarð króna," bætti Már við og tók fram að þáttaka í útboðinu, svokallaðri fjárfestingarleið Seðlabankans, hefði verið góð.

„Við vitum af því að það er talsverð samþjöppun á aflandskrónumarkaðnum. Það getur stuðlað að strategískri hegðun. Það kann að hafa verið staðan nú," sagði Már.

Seðlabankanum bárust alls 98 tilboð samtals að fjárhæð 33,1 milljón evra, í tveimur útboðum um kaup á evrum. Alls 24 tilboð að fjárhæð 16,2 milljarðar króna bárust í útboði um kaup á krónum fyrir evrur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×