Viðskipti innlent

Gistinóttum á hótelum fjölgar

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/GVA
Gistinætur á hótelum í janúar voru 123.800 og er það 36 prósent aukning miðað við janúar í fyrra. Þá voru gistinætur erlendra gesta 84 prósent af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum. Þeim fjölgaði um 39 prósent.

Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22 prósent. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Í prósentum talið var aukningin mest á Vesturlandi og Vestfjörðum, þar sem hún var 50 prósent. Minnst var hún á Suðurnesjum, eða 31 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×