Hagvöxtur ekki verið meiri frá árinu 2007 Stefán Árni Pálsson skrifar 7. mars 2014 11:17 Landsframleiðsla ekki verið hærri að raungildi frá árinu 2008. visir/Daníel
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,3% á árinu 2013 en þetta kemur fram í frétttilkynningu frá Hagstofu Íslands. Hagvöxtur hefur ekki verið meiri frá árinu 2007 og hefur landsframleiðsla ekki verið hærri að raungildi frá árinu 2008. Utanríkisverslun dregur hagvöxtinn áfram því þjóðarútgjöld á árinu 2013 jukust lítillega eða um 0,1%. Einkaneysla jókst um 1,2% og samneysla um 1,3% en fjárfesting dróst saman um 3,4%. Útflutningur jókst um 5,3% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 0,1% þannig að verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 132 milljarðar króna. Samdrátt í fjárfestingu á síðasta ári má að miklu leyti rekja til minni innflutnings skipa og flugvéla sem kemur með beinum hætti fram í fjárfestingu ársins en jafnframt til frádráttar sem innflutningur og hefur því lítil sem engin áhrif á landsframleiðslu ársins. Að frádreginni fjárfestingu í skipum og flugvélum jókst atvinnuvegafjárfesting á síðasta ári um 2,8% og fjárfesting alls um 5,8%. Halli á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum minnkaði verulega á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðatölum sem Seðlabankinn hefur nú birt. Það ásamt afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum leiddi til jákvæðs viðskiptajafnaðar í fyrsta sinn frá árinu 2002. Hann nam tæpum 82 milljörðum króna, 4,6% af landsframleiðslu á árinu 2013 og hefur afgangurinn sem hlutfall af landsframleiðslu aldrei verið meiri. Árið 2012 var hann neikvæður um rúma 80 milljarða eða 4,7% af landsframleiðslu.úma 80 milljarða eða 4,7% af landsframleiðslu.
Mest lesið Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Viðskipti innlent Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Viðskipti innlent Að sleikja narsisstann upp í vinnunni Atvinnulíf Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum Viðskipti erlent Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Viðskipti innlent „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Íslendingur missir leyfið fyrir KFC í Danmörku eftir meiriháttar hneyksli Viðskipti erlent Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað Sjá meira