Viðskipti innlent

Engin breyting á vísitölu byggingarkostnaðar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/Pjetur
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan febrúar 2014 er 118,9 stig sem er engin breyting frá fyrri mánuði. Hagstofan greinir frá þessu.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,5% en kostnaður vegna véla, flutnings og orkunotkunar hækkaði um 0,8%. Vísitalan gildir í mars 2014.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 0,1%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×