Viðskipti innlent

Íslandsbanki hyggst sameina höfuðstöðvar á einn stað

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/Valli
Íslandsbanki hyggst sameina starfsemi höfuðstöðva bankans á einn stað á Kirkjusandi en starfsemi höfuðstöðva fer fram á fjórum stöðum í dag.

Sameiningin felur í sér stækkun húsnæðis á Kirkjusandi með viðbyggingu við suðurenda byggingarinnar. Stærsta breytingin mun felast í flutningi á Upplýsingatækni- og rekstrarsviði bankans frá Lynghálsi á Kirkjusand, en á því sviði starfa um 300 manns.

„Með þessari sameiningu viljum við byggja upp öfluga fjármálamiðstöð á besta stað í borginni þar sem viðskiptavinir geta sótt alla þjónustu á einn stað og starfsmenn höfuðstöðva sameinast,“ segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.

Í tilkynningu frá bankanum segir að töluverð hagræðing náistmeð sameiningu höfuðstöðvanna á einn stað, bæði með lægri leigukostnaði og lækkun rekstrarkostnaðar vegna upplýsingakerfa, viðhaldi vinnustöðva og rekstri mötuneyta.  Með sameiningunni megi gera ráð fyrir töluverðri lækkun samgöngukostnaðar og tímasparnaðar þar sem starfsmenn þurfa ekki að ferðast á milli staða í sama mæli og í dag.

„Við horfum til þess að sameiningin auki hagræði í rekstri mannvirkja og upplýsingakerfa. Þá sjáum við í hendi okkar að ná megi fram töluverðum tímasparnaði þar sem starfsmenn þurfa ekki að eyða miklum tíma í samgöngur á milli staða. Með þessu erum við einnig að minnka umhverfisáhrif sem fylgja rekstrinum í dag til dæmis með hagkvæmari og umhverfisvænni orkunotkun og með því  að draga úr útblæstri og  eldsneytisnotkun sem fylgja ferðum á milli staða. Við eigum í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg hvað varðar deiliskipulag og frekari þróun á svæðinu og sjáum ýmis spennandi tækifæri hvað það varðar,“ segir Birna.

Íslandsbanki segir að í sameiningunni felist töluverð samlegðaráhrif þar sem mikilvægar stoðeiningar og viðskiptaeiningar sameinast undir einu þaki. Sameiningin muni þannig stuðla að enn betri þjónustu og aukinni starfsánægju.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á seinni hluta þessa árs og er áætlað að þær standi yfir í um tvö ár. Við hönnun viðbyggingarinnar verður horft til bæði umhverfisþátta og aukinnar hagkvæmni í rekstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×