Viðskipti innlent

Launavísitalan hækkaði um 1%

Stefán Árni Pálsson skrifar
Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,7%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,7%. vísir/pjetur
Launavísitala í janúar 2014 er 468,5 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,7%. Vísitala kaupmáttar launa í janúar 2014 er 115,5 stig og hækkaði um 1,7% frá fyrri mánuði.

Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,4%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×