Færri fengu en vildu kaupa hlut í Kerecis Svavar Hávarðsson skrifar 21. febrúar 2014 13:00 Áætlað er að vörur til að meðhöndla kviðslit og til endursköpunar á brjóstum eftir brottnám fari á markað á næstu tveimur árum. Mynd/Kerecis
Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis, sem er með höfuðstöðvar á Ísafirði, hefur tryggt 230 milljóna króna hlutafjáraukningu til að halda áfram þróun á lækningavörum sínum. Allir núverandi fjárfestar fyrirtækisins auka sinn hlut, auk tveggja nýrra fjárfesta sem koma að fyrirtækinu. „Það gekk vel að ganga frá fjármögnuninni – það er talsverður áhugi hjá fjárfestum að koma að félaginu og komust færri að en vildu,“ segir Guðmundur F. Sigurjónsson, stjórnarformaður Kerecis. „Ég er sérstaklega ánægður með þennan árangur í ljósi þess hversu ungt félagið er.“ Guðmundur segir að fjármunirnir sem nú eru í hendi verði nýttir til að halda áfram þróun á stoðefnum sem ætluð er til notkunar við kviðsliti, endursköpunar á brjóstum eftir brottnám vegna krabbameins, og heilabasts, en það er efnið á milli höfuðkúpu og heilans sem getur rofnað vegna slysa og krabbameins. Eins verður nýtt hlutafé notað til að halda áfram markaðssetningu á MariGen Omega3-vörunni, sem er stoðefni til meðhöndlunar á þrálátum sárum sem eru alvarlegt heilbrigðisvandamál um allan heim. Kerecis tryggði sér markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir MariGen Omega3-sáravörur sínar síðasta haust. Það var að sögn Guðmundar mikilvægt skref fyrir fyrirtækið, en Bandaríkin eru stærsti markaður heims fyrir vörur fyrirtækisins og veltir 900 milljónum dala á ári – og er í örum vexti. Fyrirtækið fékk einnig markaðsleyfi í Evrópu í fyrra og er sala þegar hafin á Íslandi og Bretlandi í kjölfar þess, ásamt nokkrum löndum í Mið-Austurlöndum. Sala á öðrum mörkuðum er í burðarliðnum auk þess sem Kerecis vinnur að öflun markaðsleyfa annars staðar í heiminum, til dæmis í Kína og á Indlandi.Guðmundur F. SigurjónssonTveir nýir bætast í fjárfestahóp Kerecis Fjárfestarnir sem koma nýir að Kerecis eru í fjárfestahópnum Capital ehf., sem er í eigu Sigurbjörns Þorkelssonar, fyrrverandi bankamanns og eins af eigendum Haga, og 1924 ehf., sem er meðal annars í eigu Haraldar Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Innness og stjórnarformanns Haugen Gruppen. Fyrir í fjárfestahóp Kerecis voru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Omega3 ehf., sem er fjárfestingarsjóður tengdur Novator í Lundúnum, og vestfirsku sjávarútvegsfyrirtækin Klofningur og Hraðfrystihúsið–Gunnvör hf.Meðhöndlun á þrálátum sárum MariGen Omega3 er þorskroð sem fellur til hjá sjávarútvegsfyrirtækjum á Vestfjörðum og meðhöndlað hefur verið þannig að allar frumur og ofnæmisvaldandi efni hafa verið fjarlægð úr roðinu. Fyrir á markaðnum eru stoðefni sem unnin eru úr húð, þvagblöðrum, þörmum og gollurhúsum svína, manna og nautgripa. Stoðefni úr fiski gefur því ákveðið forskot þar sem ekkert er um trúarlegar hindranir, eins og þegar um vörur úr svínavef er að ræða. Þá smitast ekki sjúkdómar úr fiskum í menn, ólíkt vefjum manna og dýra.
Mest lesið Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Sjá meira