Viðskipti innlent

Tenging við Evrópu verði skoðuð af alvöru

Haraldur Guðmundsson skrifar
Tenging Íslands við raforkukerfi Evrópu hefur verið til skoðunar um nokkurra ára skeið.
Tenging Íslands við raforkukerfi Evrópu hefur verið til skoðunar um nokkurra ára skeið. Mynd/Landsnet
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, hvetur til þess að tenging við raforkukerfi Evrópu verði skoðuð af mikilli alvöru og forsendur verkefnisins treystar áður en ákvörðun er tekin um hvort ráðast eigi í það.

Þetta kemur í fram í ályktun aðalfundar Samorku. Þar segir að verkefnið yrði stærsta og flóknasta fjárfesting í sögu landsins og gæti haft mikil jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, en að fjölmörgum spurningum sé enn ósvarað.

„Þá leggur Samorka áherslu á mikilvægi þess að hér séu gerðar raunhæfar kröfur til fráveiturekstrar þannig að uppfyllt verði eðlileg skilyrði en ekki gerðar kröfur að nauðsynjalausu sem hafa í för með sér fjárfestingar umfram eðlilega fjárfestingargetu veitufyrirtækja og sveitarfélaga. Loks ítrekar Samorka mikilvægi þess að sátt náist um rammaáætlun og um nauðsynlega uppbyggingu á flutningskerfi raforku,“ segir í tilkynningu Samorku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×