Boðar samráð við stjórnarandstöðu um breytingar á Seðlabanka Heimir Már Pétursson skrifar 21. febrúar 2014 20:00
Til greina kemur að fjölga bankastjórum Seðlabankans í þrjá í frumvarpi sem fjármálaráðherra boðar um bankann. Ekki sé verið að hverfa til fortíðar og sjálfstæði Seðlabankans verði tryggt. Núverandi bankastjóri sækist eftir að gegna starfinu áfram. Fjármálaráðherra segir tímabært að endurskoða lög um Seðlabankann nú þegar fimm ár eru liðin af skipunartíma núverandi bankastjóra og ætlar að skipa starfshóp til að endurskoða lögin. Eins sé rétt að skoða mörkin á milli núverandi starfsemi bankans og Fjármálaeftirlitsins. Breytingarnar miði að því að gera bankanum betur kleift að sinna faglegu hlutverki sínu og í engu verði kvikað frá sjálfstæði bankans. Til greina komi að fjölga bankastjórum í þrjá eða setja tvo aðstoðarbankastjóra með aðalbankastjóra.Er ekki verið að hverfa til fortíðar í þessum efnum eða til fyrra horfs í Seðlabankanum? „Nú segir þú að við ætlum að snúa til fyrra horfs. Ég er að segja að við ætlum að koma á fót starfshópi til þess að betrumbæta löggjöfina um Seðlabankann og tryggja enn betur en á við í dag. Ég segi að þessar breytingar horfi til framtíðar, þetta er framsækin aðgerð en ekki eitthvað sem horfir til fortíðar og það er ekki fólgið í þessu neitt afturhvarf til fortíðar,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Þegar lögum um Seðlabankann var breytt árið 2009 hafi það gerst á skömmum tíma og án samráðs við þáverandi stjórnarandstöðu. Breytingarnar nú feli ekki í sér vantraust á núverandi bankastjóra, sem sagði í yfirlýsingu í dag að hann hyggðist sækjast eftir að starfa áfram, með þeim fyrirvara að lagabreytingar feli ekki í sér breytingar á eðli starfsins eða á umsóknarferlinu sjálfu. „Við gerum þetta að vel athuguðu máli með því að koma á fót starfshópi. Þar sem við leitum eftir sjónarmiðum og ég mun kalla eftir samstarfi við stjórnarandstöðuflokkana um undirbúning að þessum breytingum. Það kalla ég að vinna að málinu með faglegum og vönduðum undirbúningi,“ segir Bjarni. Ríkisstjórnin hefur ekki alltaf verið sátt við ákvarðanir núverandi stjórnenda bankans.Eru þetta viðbrögð við því að Seðlabankinn hafi ekki verið nógu hlýðinn eða ekki á pari við þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur tekið í efnahagsmálum? „Nei. Ég hef rakið það í nokkuð löngu máli að það eru gild rök til þess nú þegar fimm ára reynsla er komin á síðustu breytingar að leggja mat á hvernig þær hafa reynst,“ segir fjármálaráðherra.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent