Viðskipti innlent

Fengu fjóra Lúðra hvor

Auglýsingastofurnar ENNEMM og Janúar Markaðshús fengu flest verðlaun eða fjóra lúðra hvor  á hinni árlegu afhendingu Íslensku markaðsverðlaunanna, Lúðrinum, sem haldin var við hátíðlega athöfn í Hörpu í kvöld. Næst á eftir var Brandenburg með þrjá lúðra og H:N Markaðssamskipti og Tjarnargatan framleiðslufyrirtæki tvo lúðra hvor. Jónsson og Le´macks fékk einn lúður.

ÍMARK, Samtök íslensks markaðsfólks, stendur fyrir viðburðinum í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa. Tilgangur Lúðursins er að vekja athygli á vel gerðu auglýsingaefni og veita aðstandendum þess verðskuldaða athygli. Þetta er í tuttugasta og áttunda skipti sem Lúðurinn er haldinn en keppnin er opin öllum sem stunda gerð eða dreifa auglýsingum á Íslandi.

Lúðurinn er veittur í 15 flokkum þar sem auglýsingar sem skarað hafa fram úr á árinu eru verðlaunaðar. Það sem ræður úrslitum er hversu frumleg, snjöll og skapandi hugmyndin er og svo hversu vel hún er útfærð.

Janúar Markaðshús fékk lúðurinn fyrir bestu auglýsingaherferðina, sem yfirleitt eru talin ein af eftirsóttustu verðlaununum, fyrir herferðina „Takk fyrir Malt“ sem unnin var fyrir Ölgerðina Egil Skallagrímsson. Kvikmyndaða auglýsingin sem Janúar gerði fyrir Ölgerðina um þennan vinsæla drykk fékk einnig lúðurinn í þeim flokki.

ENNEMM fékk lúðurinn fyrir bestu prentuðu auglýsinguna ,,Við vitum að allt getur gerst“ sem unnin var fyrir VÍS og H:N Markaðssamskipti fékk lúðurinn fyrir árangursríkustu auglýsingu ársins ,,Betri en þú“ sem unnin var fyrir markaðsráð kindakjöts.

Verðlaunahafarnir eru eftirfarandi:

Auglýsingaherferðir

Takk fyrir Malt - Ölgerðin - Janúar Markaðshús

Almannaheillaauglýsingar – Aðrir miðlar

Höldum fókus - Samgöngustofa og Síminn - Tjarnargatan framleiðslufyrirtæki og ENNEMM

Prentauglýsingar

Við vitum að allt getur gerst - VÍS – ENNEMM

Útvarpsauglýsingar

Novasveinarnir 13 – Gagnagleypir - NOVA – Brandenburg

Viðburðir

Opnunaratriði Vetrarhátíðar - Orkusalan - Brandenburg og Unstable

Stafrænar auglýsingar – Samfélagsmiðlar

Hámark – Hollur félagi - Vífilfell - Brandenburg 

Stafrænar auglýsingar – Vefauglýsingar

Megamaðurinn - Dominos - Janúar Markaðshús

Stafrænar auglýsingar - Viral

RIG - Fimleikabrella - Síminn - ENNEMM 

Kvikmyndaðar auglýsingar

Takk fyrir Malt - Ölgerðin - Janúar Markaðshús

Veggspjöld og skilti

Smint - Ísjaki - Ölgerðin – ENNEMM

Umhverfisauglýsingar

Við vitum að allt getur gerst - VÍS - ENNEMM 

Markpóstur

Check the cork for Quality - Katla - H:N Markaðssamskipti 



Almannaheillaauglýsingar – ljósvakamiðlar


Þerrum tárin - Á allra vörum - Janúar Markaðshús

Ásýnd fyrirtækis eða vörumerkis

Norður Salt - sjávarsalt
 - Norður Salt - Jónsson & Le'macks 



Árangursríkasta auglýsing ársins

Betri en þú - Markaðsráð kindakjöts - H:N Markaðssamskipti 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×