Viðskipti innlent

Björn Brynjúlfur ráðinn hagfræðingur Viðskiptaráðs

Björn er með BS-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Oxford-háskóla.
Björn er með BS-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Oxford-háskóla. Mynd/Viðskiptaráð
Björn Brynjúlfur Björnsson hefur verið ráðinn hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Meginverkefni Björns verður að hafa umsjón með málefnastarfi ráðsins. Jafnframt mun hann taka þátt í stefnumótun, samskiptum við stjórn og félagsmenn sem og sinna annarri daglegri starfsemi. Þetta kemur fram í tilkynningu Viðskiptaráðs um ráðninguna. Þar segir að Björn haf þegar hafið störf.

„Björn hefur víðtæka þekkingu og reynslu af stefnumótun og greiningarstörfum, en hann starfaði áður sem ráðgjafi hjá Kaupmannahafnarskrifstofu alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey & Company. Í störfum sínum hjá McKinsey vann Björn einkum að stefnumótun og rekstrarumbótum í opinbera geiranum og hjá alþjóðlegum framleiðslu- og upplýsingatæknifyrirtækjum. Þar áður vann hann hjá greiningardeild fjárfestingarbankans Credit Suisse í London. Björn er með BS-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Oxford-háskóla," segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×