Laun Pólverjanna 14% hærri Haraldur Guðmundsson skrifar 24. febrúar 2014 08:47 Pólskir félagsmenn Eflingar sem störfuðu í byggingariðnaði fengu að meðaltali 376 þúsund krónur í mánaðarlaun. Vísir/Vilhelm
Heildarlaun pólskra félagsmanna stéttarfélagsins Eflingar voru að meðaltali um fjórtán prósentum hærri en laun íslenskra félagsmanna í september síðastliðnum. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Eflingar. Hún inniheldur ekki upplýsingar um vinnutímann á bak við launin enda hvergi hægt að nálgast tölur um fjölda vinnustunda eftir þjóðerni. Samkvæmt niðurstöðum norrænnar samanburðarrannsóknar sem rannsóknarmiðstöðin MIRRA vann að og kynnti fyrr í þessum mánuði, eru Pólverjar aðeins með 57 prósent af meðallaunum á íslenskum vinnumarkaði. „Við ekki bara gagnrýnum, við vefengjum að staðan sé þannig. Rannsókn MIRRU olli töluverðum heilabrotum og niðurstaðan er á skjön við okkar reynslu og við teljum að þarna sé einfaldlega verið að mæla ranga hluti. Hins vegar vantar inn í okkar samantekt tölur um vinnutíma en mér finnst tölurnar benda til þess að pólskir félagsmenn okkar vinni lengri vinnudaga,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar.Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, segir það tilfinningu starfsmanna ASÍ að Pólverjar, bæði karlar og konur, séu almennt á lakari launum en Íslendingar í sambærilegum störfum. „Sú tilfinning byggir ekki á neinum tölfræðilegum upplýsingum,“ segir Halldór en hann telur launamuninn sem var dreginn upp hjá MIRRU vera langt umfram þeirra mat. „Þegar við sáum þessa niðurstöðu MIRRU þá passaði hún engan veginn við það sem við töldum okkur vita best. Við skoðuðum þá tölfræði og aðferðafræði sem niðurstaðan byggir á og þá kom í ljós að hún byggði annars vegar á viðtalskönnun við fimm hundruð Pólverja sem sögðu hvað þeir töldu sig vera með í laun. Hins vegar voru þær upplýsingar bornar saman við tölur Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, um meðallaun á íslenskum vinnumarkaði, og þar er eingöngu að finna tölur um meðallaun óháð starfs- eða atvinnugreinum.“ Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir, mannfræðingur og forstöðumaður MIRRU, segir gagnrýni á aðferðafræði rannsóknarinnar fela í sér ákveðna vantrú. „Ég spyr mig hvort launþegahreyfingin sé að draga í efa það sem fólkið segir sjálft um launin sín. Mér finnst þetta líka sýna að það verður að rannsaka frekar þessi launakjör og þá sérstaklega út frá vinnustundum.“
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira