Viðskipti innlent

GAMMA flutt á Garðastræti

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Garðastræti 37 er meðal elstu funkishúsa landsins.
Garðastræti 37 er meðal elstu funkishúsa landsins. Vísir/GAMMA
Fjármálafyrirtækið GAMMA hefur flutt starfsemi sína í eigin húsnæði á Garðastræti 37. Fyrirtækið hefur verið staðsett á Klapparstíg 29 í fimm ár en flytur nú í stærra húsnæði sem samkvæmt tilkynningu gerir félaginu enn betur kleift að sinna vaxandi starfsemi sinni og taka vel á móti viðskiptavinum.

Fjármálafyrirtækið GAMMA er með um 45 milljarða í sjóðastýringu fyrir hundruði viðskiptavina þar á meðal lífeyrissjóði, tryggingafélög, eignastýringar, bankastofnanir, erlenda aðila og efnameiri einstaklinga.

Einnig sinnir GAMMA ráðgjöf og hefur á undanförnum árum verið ráðgefandi Alþingi, ráðuneytum og öðrum opinberum aðilum, tryggingafélögum, lífeyrissjóðum, Landsvirkjun og mörgum fleirum. Hjá GAMMA og tengdum félögum starfa 22 starfsmenn.

Garðastræti 37 er meðal elstu funkishúsa landsins og hýsti meðal annars lengi vel starfsemi Síldarútvegsnefndar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×