Viðskipti innlent

Sérfræðingur Nýherja í úrvalshóp hjá IBM

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Pétur Eyþórsson í Star Trek búningi á Nýherja ráðstefnu.
Pétur Eyþórsson í Star Trek búningi á Nýherja ráðstefnu. Vísir/Nýherji
IBM hefur valið Pétur Eyþórsson, hugbúnaðarsérfræðing hjá Nýherja, í 8 manna fagráð fyrir IBM Tivoli Storage Manager hugbúnað, sem er ætlað að marka stefnu og nálgun fyrir hugbúnaðinn á markaði.

Pétur er eini sérfræðingurinn utan IBM sem fær inngöngu í ráðið, samkvæmt tilkynningu frá Nýherja.

IBM Tivoli Storage Manager er miðlæg afritunarlausn fyrir tölvukerfi og er leiðandi lausn á sínu sviði. Hún er í notkun hjá flestum af stærstu fyrirtækjum landsins og fyrirtækjum sem sérhæfa sig í hýsingalausnum.

„Það er mikill heiður fyrir Pétur að vera valin í fagráð IBM fyrir Tivoli Storage Manager afritunarlausnir, ekki síst þar sem hann er eini í fagráðinu sem er ekki frá IBM. Að vera boðinn í slíkt ráð er staðfesting á því að Pétur er í útvöldum hópi sérfræðinga og einstakt að íslensk fyrirtæki hafi aðgang að einum fremsta sérfræðingi í heimi á sviði afritunarlausna. Jafnframt er það staðfesting á miklum þekkingarauði sem er að finna hjá sérfræðingum Nýherja í upplýsingatækni,“ segir Gunnar Zoëga framkvæmdastjóri Tæknisviðs Nýherja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×