Hagnaður fór úr sjö milljónum í 187 milljónir á milli ára Samúel Karl Ólason skrifar 25. febrúar 2014 13:21 Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa.
Landsbréf hf. högnuðust um 187 milljónir króna í fyrra, eignir í stýringu jukust um 33 prósent og námu rúmum 110 milljörðum króna í árslok. Árið 2012 var hagnaður Landsbréfa tæpar sjö milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningum og tilkynningu frá fyrirtækinu. Í lok ársins var eigið fé Landsbréfa 1.644 milljónir króna og eiginfjárhlutfall var 115,5 prósent. Hreinar rekstrartekjur námu 969 milljónum króna árið 2013 en 443 milljónum 2012. Á árinu valdi Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta Landsbréf sem einn þriggja aðila til að stýra eignum sjóðsins að undangengnu útboði og hæfismati. Þá veitti Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands Landsbréfum viðurkenningu í lok árs sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. „Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu 2013 og hafa sjóðir félagsins skilað góðum árangri fyrir fjárfesta. Árið einkenndist af miklum vexti og þróun nýrra afurða og má sem dæmi um slíkt nefna að á haustmánuðum voru kauphallarsjóðirnir Landsbréf – LEQ og Landsbréf – LREAL teknir til viðskipta í Kauphöllinni. Kauphallarsjóðir hafa notið vaxandi vinsælda erlendis og má gera ráð fyrir að þróunin verði á sama veg hér á landi,“ segir Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í tilkynningu.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira